Skólagjöld 2022-2023

 

Skólagjöld skólaársins 2022 - 2023 hafa verið uppfærð í samræmi við vísitölu neysluverðs. Hækkunin er hér birt með fyrirvara um samþykki skólanefndar. Skólinn veitir systkinaafslátt. Upplýsingar veitir ritari tonrangrit@tonrang.is sími: 488 4280.
Athugið að uppsagnarfrestur á námsplássi sem byrjað er að nýta er 3 mánuðir
Hafið samband við skrifstofu og/eða skólastjóra ef nemandi óskar eftir að hætta námi við skólann. Hægt er að hringja í 4884280 eða senda póst á tonrang@tonrang.is/tonrangrit@tonrang.is. Grunngjöld miðað við einn nemanda í 100% námi:

Hljóðfæranám

  • Grunnám: 84.901,-
  • Miðnám: 93.322,-
  • Framhaldsnám: 101.741,-

Söngnám:

  • Grunnnám kr. 127.202,-
  • Miðnám kr. 139.851,-
  • Framhaldsnám kr. 152.502,- 

Fullorðnir Hljóðfæranám:

  • Grunnnám kr. 127.202,-
  • Miðnám kr. 139.633,-
  • Framhaldsnám kr. 152.265,-

Fullorðnir Söngnám:

  • Grunnnám kr. 193.311,-
  • Miðnám kr. 212.573,-
  • Framhaldsnám kr. 228.411,-

Tónfræðigreinar Fjarnám í  í tónfræðigreinum eingöngu: 15.000 kr. Skólinn býður ekki uppá tónfræðigreinar á framhaldsstigi nema efni standi til og  fyrir þá nemendur sem hafa lokið miðprófi í hljóðfæraleik og hyggjast ljúka framhaldsstigsprófi við skólann. Til að framhaldsstigsáfangi í tónfræðigreinum sé kenndur þarf fjöldi nemenda í hóp að vera minnst 4.  Nemendum sem hafa lokið miðprófi í hljóðfærleik eða söng og ekki eiga kost á því að stunda nám á framhaldsstigi í tónfræðigreinum við skólann er boðið að sækja hóptíma utan skóla, á Selfossi eða í fjarnámi frá Menntaskólanum í tónlist.


Samspil og samsöngur Nemendur á strokhljóðfæri, söngnemendur og nemendur sem stunda nám á ryþmísk hljóðfæri  þurfa að sækja samspilstíma í samræmi við námsmarkmið. Þeir tímar eru innifaldir í skólagjöldum. Nemendur sem lokið hafa grunnstigi að fullu og stunda hljóðfæranám eða söngnám á miðstigi eða framhaldsstigi sækja undirleikstíma eins og við á og námskrá gerir ráð fyrir. Undirleikstímar eru innifaldir í skólagjöldum.


Hljóðfæraleiga 2022 - 2023 
Tónlistarskóli Rangæinga getur leigt nemendum hljóðfæri fyrstu árin í námi. Hljóðfæri sem eru leigð út eru alfarið á ábyrgð leigutaka yfir skólaárið.  Hafið samband við skrifstofu til að fá frekari upplýsingar hvaða hljóðfæri eru í boði.

  • Hljóðfæraleiga:  13.859 kr 
  • Hljóðfæraleiga: strokhljóðfæri, trommusett: 16.266 kr.