Fréttir & tilkynningar

19.10.2026

70 ára afmæli tónlistarskólans

Þann 19. október 1956 hófst kennsla í Tónlistarskóla Rangæinga og er skólinn því 70 ára! Af því tilefni verða haldnir ýmsir viðburðir í vetur, m.a. stórtónleikar föstudaginn 13. nóvember þar sem allir nemendur skólans munu koma fram. Tónleikarnir verða auglýstir síðar. 
18.09.2026

Tónlistarkennari í 25-30%

Tónlistarskóli Rangæinga óskar eftir málmblásturskennara í 25-30% starfshlutfall. Kennt er samkvæmt Aðalnámskrá Tónlistarskólanna. Við Tónlistarskóla Rangæinga starfa um 20 tónlistarkennarar, þar er góður starfsandi og blómlegt starf. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað.
11.05.2026

Skólaslit 2026

Skólaslit Tónlistarskólans fyrir skólaárið 2025-2026 fara fram þriðjudaginn 19.maí kl:17:00 í Hvolnum á Hvolsvelli. Þá verða vitnisburðir og prófskírteini afhend og veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur. Hlökkum til að sjá sem flesta!
11.05.2026

Nafnasamkeppni