Fréttir & tilkynningar

11.05.2026

Skólaslit 2026

Skólaslit Tónlistarskólans fyrir skólaárið 2025-2026 fara fram þriðjudaginn 19.maí kl:17:00 í Hvolnum á Hvolsvelli. Þá verða vitnisburðir og prófskírteini afhend og veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur. Hlökkum til að sjá sem flesta!
11.05.2026

Nafnasamkeppni

Nú er verið að leggja lokahönd á nýja húsnæði tónlistarskólans á Hellu, en stefnt er að hefja kennslu þar í haust. Þar verðum við með fjórar kennslustofur. Ákveðið hefur verið að efna til nafnasamkeppni um nöfn á stofunum fjórum í nýja húsnæðinu.
05.05.2026

Það er opið fyrir umsóknir fyrir næsta skólavetur!

Langar þig að læra á hljóðfæri? Í Tónlistarskóla Rangæinga er fjölbreyttur hópur frábærra tónlistarkennara sem kenna á 14 ólík hljóðfæri og söng. Það er kennt eftir aðalnámskrá tónlistarskóla og er boðið upp á bæði klassískt og ryþmískt nám. Næsta skólaár byrjar í lok ágúst og er opið fyrir umsóknir hér á heimasíðu skólans: