Fyrsta Suzukiútskrift Tónlistarskóla Rangæinga

Haustið 2015 hófst undirbúningur að stofnun Suzukideildar við Tónlistarskóla Rangæinga. Enn er verið að leggja grunn að deildinni og við erum bjartsýn enda afskaplega duglegir nemendur og foreldrar sem nú stunda Suzukinám við skólann. Í dag, laugardaginn 12. mars, fór fram fyrsta Suzukiútskriftin hjá skólanum. Fjórir nemendur útskrifuðust úr Suzuki Tilbrigðum á fiðlu og píanó.    Einn nemandinn útskrifaðist að auki úr Suzukipíanóbók nr. 2. Við óskum nemendunum hjartanlega til hamingju með árangurinn. Kennari nemendanna, Guðrún Markúsdóttir afhenti þeim viðukenningarskjöl að tónleikum loknum. Prófdómari á útskriftinni var Ulle Hahndorf. Á tónleikunum spiluðu auk þess fulltrúar okkar sem munu spila á Afmælistónleikum Suzukisambandsins í Hörpu 13. mars. Suzukiútskrift mars 2016Suzukiútskriftartónleikar mars 2016